Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Í dag

er ég búin að vera edrú í 19 mánuði og einn dag. Fyrir 19 mánuðum og einum degi síðan hefði mér aldrei dottið í hug að ég næði þessum tíma. En þessi tími samanstendur af litlum einingum sem koma í 24 klukkustunda pökkum. Ég á það til að hugsa mikið um morgundaginn og framtíðina almennt, og þá missi ég af nú-inu.
Ég er farin að geta notið dagsins í dag, og skapað þannig runu af góðum dögum, sem takast í hendur og mynda vikur, mánuði og ár.
Ég á yndislegan mann, og saman eigum við yndislegt barn. Við eigum bæði tvö yndislegar fjölskyldur og yndislega vini. Gæti lífið verið eitthvað yndislegra?
Ef ég festist í þráhyggju út í framtíðina eða fortíðina, er grasið fljótt að verða grænna hinu megin.
Ég hef breyst. Ég hef gaman af lífinu. Ég er þakklát.


Nítjándi febrúar tvöþúsund og átta

Það er dagurinn sem ég byrjaði að blogga á ný.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband